Þegar Toni Barnett lenti í bílslysi og slasaðist á baki vissi hún hvert skyldi leita til að fá bata. Hin 24ra ára gamla hestakona hafði fylgst með John MacManaway lækna hvern hestinn á fætur öðrum á hestabýlinu þar sem hún hafði unnið sl. fimm ár. Ég hugsaði með mér að ef þetta hjálpaði þeim, myndi það líka geta hjálpað mér, segir hún brosandi. Ég vissi að John gat gert ótrúlega hluti varðandi bakmeiðsl.
MacManaway sem er fertugur, hefur læknað bæði menn og hesta í þessum hluta Skotlands í tvo áratugi. Samsetning hans af mildri manipuleringu, vöðvanuddi og trúarheilun virðist gagna vel þegar hefðbundnar aðferðir bresta. Vinsældir hans eru slíkar að hann meðhöndlar 1.500 manns og 700 hesta á ári þ.á m. Ólympíuþátttak-endur og Grand National þátttakendur.
Þegar Toni hitti hann í fyrra greindi hann klemmda taug í mjóbaki sem læknarnir höfðu ekki tekið eftir. Ég hafði mikla verki í öxlum en John sagði vandamálið eiga upptök sín í miðbaki, segir hún. Síðar þann sama dag leið mér vel og hef ekki fundið fyrir twinge síðan.
Tvífættir og fjórfættir sjúklingar fá svipaða meðferð frá heilaranum, því fólk og hestar hafa mjög líka hrygg-uppbyggingu líffræðilega séð. "Hvernig vöðvar og taugar umvefja mænuna/hryggsúluna er mjög svipað í manni og hesti" útskýrir John. "Það eina sem er öðruvísi er að hesturinn getur ekki sagt þér hvar verkurinn er". Meðan við spjöllum er hann að meðhöndla sjúkling, fimm vetra gelding, Chergan, sem þjáist greinilega eftir veðhlaup í síðustu viku. Susan Bradburne einn þekktasti tamningamaður Norður-Bretlands og sú sem rekur býlið sem Toni Barnett vinnur á, kom með hann til meðhöndlunar. Toni þjálfar hestinn daglega og er kvíðin. "Hann hljóp svo hratt og vel, fékk frábæra einkunn, en hefur ekki verið samur síðan", segir hún. Chergan hefur góða lund en er viðkvæmur. Hann balloons stökk sín svo það er ekki furða þótt hann fái í bakið. - Það er augljóst að hesturinn sýnir öll merki álags og ójafnvægis. Fætur hans eru í vörn og augu hans opin og starandi. John sem talar til hans með lágri róandi röddu leggur aðra hönd sína á hrygg hans rétt til hliðar við hnakkinn (saddle mark). (Hann hefur þá þegar greint vandamálið með því að nota pendúl sem er yfirleitt 99% öruggur þrátt fyrir að margir efist um það). Þá ýtir hann Chergan að hesthúsveggnum um leið og hann ýtir höfði hans í hringi að sér svo að hryggurinn teygist í arc (boga). Ekkert afgerandi virðist gerast, engin hljóð sem sýna að eitthvað hefur gerst undir húðinni en samt má sjá afgerandi breytingu strax. Höfuð Chergans dettur niður og augu hans lokast. 20 mínútum síðar borðar hann hey og virðist verkjalaus. Það er freistandi að líta á MacManaway sem skoskan hesta-hvíslara en hann er fljótur að neita því. "Hestahvíslari er sjáandi sem stillir sig inn á hvað hesturinn er að upplifa, útskýrir hann. Mín sérgrein er að laga bakvandamál þeirra og ég sæki ekki eftir því að skilja skapgerð þeirra eða sveiflur." Það má vera að hann skilji þá ekki en MacManaway hefur ótrúleg áhrif á þá hesta sem hann tekur að sér. Þótt þeir séu upptendraðir og í ójafnvægi, taka þeir öllu vel sem hann gerir og setja sig yfirleitt aldrei upp á móti því. "Aðferð Johns virðist gagnast flestum hestum," segir Susan Bradburne sem á 18 hesta á hestabýlinu og margir hverjir eru heimsfrægir hestar. "Ég hef leitað hjálpar hans sl. 15 ár og mundi ekki gera það aftur og aftur væri ég ekki að sjá árangur" segir hún afdráttarlaust.
MacManaway hóf feril sinn sem "bakmaður" fyrir 21 ári síðan og byrjaði upphaflega að nema þau fræði sem lækna manninn. Faðir hans var brautryðjandi í óhefðbundn-um aðferðum - svo John hóf nám í British School of Osteopathy en hætti þar og hóf að stúdera aðferðir föður síns sem fólust í því að sameina milda meðferð með heilunarhöndum. "Mér þótti osteopatían of harkaleg", segir hann. "Mér þóttu hnykkingarnar og hljóðin sem þeim fylgdu, aðeins vera til að hafa áhrif á sjúklinginn (láta hann halda að eh. mikið væri að gerast) en ekki að það hefði nein áhrif. Um leið og hann breiðir teppi yfir bak Chergans yfirgefur hann hesthúsið hljóðlega og segir: Ég trúi því ekki að beita þurfi valdi (hnykkhljóð) til að fá liðinn betri. Ég hef meðhöndlað fólk í 20 ár án þess að að heyra hljóð með góðum árangri.
Þrátt fyrir stórkostlegan árangur á mönnum og hestum segist hann samt sem áður vera "síðasta hálmstráið" hjá flestum - en segir þó að viðhorf manna sé eitthvað að breytast. - Chergan er á hraðri batauppleið en hann mun ekki keppa í Grand National á morgun þótt Susan Bradburne hafi fulla trúi á hæfileikum hans. En hann gerir það seinna með Johns hjálp.