Innlöndin fimm - eða fimm hliðar sálarinnar

Til þess að geta orðið "það sjálf sem við sannlega erum" þurfum við að gera okkur ferð inn í sálina; hlusta á tilfinningar okkar, líðan og hugsanir. Allir sálrænir atburðir sem við verðum fyrir leiða okkur að innra sjálfinu og það er engum auðvelt viðfangsefni að skynja tilfinningar sínar og líðan. Okkur er gjarnt að afneita djúpum tilfinningum og bæla þær niður. Þegar fólk leggur upp í sína ferð gæti því fundist það vakna af dvala, því sumir hlutar líkamans hafa sofið um langan tíma. Við tökum vel á móti sumum tilfinningum sem fram koma meðan aðrar gefa okkur ástæðu til að vinna heimavinnuna okkar. Um jákvæðar og neikvæðar tilfinningar er að ræða. Tilfinningar okkar og líðan eru leiðbeinandi orkukraftur. Þær geta líka hnippt í okkur, sparkað í okkur frá einhverri hlið innra sjálfsins sem segir: "Vaknaðu! Taktu eftir mér! Hleyptu mér út! Leyfðu mér að vera!"

Sjálfs-raunveruleiki er leitin að miðju verundar okkar sem þótt það hljómi þversagnarkennt stjórnar leitinni um leið. Sjálfsraunveruleiki verður til af sjálfu sér að einhverju leyti því það er meðfædd þrá að lifa einsog okkur er eðlislægt. Ef við viljum upplifa  mannlegu möguleika/hæfileika okkar verðum við að vera STÖÐUGT TENGD við kjarna sjálfsins. Það veltur á því að vera tilbúinn til að hlusta á skilaboð sjálfsins sem tekur á sig sálrænar myndir; skynjun, tilfinningu, innsæi, hugsun og ímynd. Að hlusta á þessi skilaboð er að rannsaka sálina og finna innra sjálfið. Sálin og sálrænir atburðir geta haft áhrif á líkamann um leið og hann getur haft áhrif á sálina.

Þegar við leggjum upp í þessa ferð, væri gott að nota landabréf. Það myndi auðvelda okkur ferðalagið.  Mikilvægara er þó að landakortið gæti hjálpað okkur að finna áhugaverð svæði sem okkur gætu annars yfirsést. Þrýstipunktakerfi Taóískrar heimspeki er eitt slíkt landakort, sem sýnir innlöndin fimm; Shen, I', P'ó, Chih og Hun. Þessar fimm hliðar sálarinnar eru þær fimm meginleiðir sem við tengjum við lífið. Tilfinningar okkar og líðan eru skilaboð frá einu eða fleirum þessara landa. Hvert og eitt er starfslega séð tengt ákveðnum hlutum líkamans eða vefjum. Hvert og eitt verður einnig fyrir áhrifum ákveðinna þrýstipunktahópa. Við getum notað þessa þrýstipunkta við að létta á líkamlegri eða tilfinningalegri spennu og til að tengjast innra eðli okkar.

Förum nú í stutta ferð með leiðsögumanni gegnum löndin fimm. Við stoppum ekki nógu lengi á hverjum stað til að geta rannsakað hann ofan í kjölinn en nógu lengi samt til þess að sjá og skynja eitthvað af þeirri fegurð sem landið býður upp á. Svo getum við farið seinna og skoðað hlutina í smáatriðum. Leiðsögumaður okkar er hin forna taóíska heimspeki. Ég vona að þú getir svo komið aftur að leika þér í þessum innlöndum með þá góðu tilfinningu að þú þekkir eitthvað til.

Eldlandið Shen

Yin líffæri: hjarta og gollurshús. Yang líffæri: smáþarmar og þríhitar. Öfgafull tilfinning: spenna og áfall. Eðlislæg tilfinning: gleði og hamingja. Líkamsvökvi: Sviti. Líkamshluti: Æðakerfið. Hljóð: Hlátur. Skyld líffæri: tunga/tal. Orkueiginleikar: vöxtur.


Shen er eitt þeirra fimm landa sem við heimsækjum; á vissan hátt nær það yfir öll löndin því Shen er stjórnandi sálræna sviðsins. Það hefur sterk áhrif á hin löndin fjögur, sem eru í meginatriðum birting Shen. Hvert er eðli Shen? Einkenni þess er lífsástríða. Að finna Shen er að finna hjartað á sálræna sviðinu. Shen er tilfinningalegt og andlegt nafn yfir land hjartans. Það er lífsblóð mannleikans og tilfinningar okkar eru líflínan. Ímyndin er eldur; tilfinningarnar eru ELDUR lífsins.

Descartes sagði: "ÉG HUGSA, þess vegna er ég." Við segjum: "ÉG FINN, þess vegna er ég." Það er fyrir tilfinningar að við upplifum verund okkar; það er fyrir hugsanir að við útskýrum hvað við uppgötvum og skynjum. Þekking krefst vitsmuna, en að þekkja hluti krefst einnig reynslu. Stundum er hugsun aðeins leið til að bregða á leik einsog þegar barn á gönguferð leikur sér að því að sulla í pollum. Hugsunin er líka leið til að lyfta undir hæfileika okkar til að stýra frá klettum og grynningum, hugurinn getur lært um samsetningu vatnsins og gerð þess, hvernig það hegðar sér nú og hvaða leiðir það ruddi sér áður fyrr og hvar það fer í framtíðinni. Áin er á stöðugri hreyfingu, hún breytist sífellt. Tilgangur hennar er ekki bundinn við það hvað okkur FINNST HÚN vera eða eiga að vera. Tilgangur lífsárinnar er háður skynjun okkar og innsæi.

Shen, innri andinn er skynjunarþáttur. Shen leyfir okkur að LIFA og veitir okkur þá tilfinningu að við séum á lífi, sem þýðir að við skynjum. Shen er verndarandinn, sá sem samræmir merkin. Þessvegna hefur hverslags  álag áhrif hér, en SKYNDILEG ÓVÆNT gleði og ÁFALL eða sársauki valda mesta álaginu á hjartað. Nútíma rannsóknir telja álagsþætt ekki aðeins fela í sér sársauka vegna breytinga til hins verra, heldur líka hina áköfu gleði stórra breytinga til hins betra - þ.e. hvaðeina sem framkallar djúpa þörf fyrir endurstillingu. Að afneita þeirri staðreynd að breyting eigi sér stað er ein leið til að breyta álagi í neyðarástand. Álagi má breyta ef við hlustum á sálræn skilaboð sem koma frá æðra sjálfinu og lærum af þeim.

Shen er eins og konungur líkamsvitundarinnar. Tengsl okkar við þennan innri stjórnanda eru áríðandi. Að finna Shen - er að upplifa sig LIFANDI. Shen er sæti hins guðdómlega/himneska ljóss, samkvæmt fornum bókum. Það er í meginatriðum lífsneistinn sem hefur áhrif á allt sem við gerum. Orðið "Shen" felur í sér merkinguna "að víkka út" og "að skapa". Andi kjarnans vill breiða sig yfir alla verund okkar og inn í veröldina kringum okkur. Að víkka út orku okkar ER að SKAPA. Það er með því að víkka út orku okkar út í lífið og lifa til fulls, að við sköpum okkur sjálf og finnum gleðina í því AÐ VERA.

Þýtt og endursagt úr The Joy of  Feeling eftir I. Maarsha Teesgarden með leyfi höfundar.

Til baka

Póstlisti
Skráðu netfang þitt hér að neðan
 

Elementin fimm

Lifrin nærir vöðva og vöðvar styrkja hjarta. Lifrin stjórnar augum, sjónin.
Hjarta nærir blóðið sem lífgar magaorkuna. Hjarta stjórnar tungunni.
Magi styrkir holdið og holdið ver lungun.
Maginn stjórnar munninum.
Lungun styrkja húð og hár sem svo verja nýrun.
Lungu stjórna nefi.
Nýrun styrkja bein og merg sem svo styrkja lifur.
Nýrun stjórna eyrum.